19 ág. 2016
Fullt starf Tæknimaður Grundartanga
ATH: Þessi auglýsing er útrunnin!
Starfslýsing
Hamar ehf óskar eftir tæknimanni með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að styðja við rekstur starfsstöðvar Hamars á Grundartanga og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu auk þess að sinna öðrum verkefnum á tæknisviði fyrirtækisins.
Helstu verkefni tæknimanns:
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini Hamars á Grundartanga
- Heimsóknir til viðskiptavina
- Verkefni á tæknisviði, s.s. hönnunar-, tækni- og teiknivinna
- Tilboðsgerð, eftirlit með verkefnum og verkefnastýring
- Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
Menntunar og hæfniskröfur:
- Véltæknifræði- eða verkfræðimenntun æskileg en véliðnfræði kemur einnig til greina.
- Góð reynsla og þekking á faginu nauðsynleg
- Iðnmenntun er mikill kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð og gott skipulag
- Góð þekking á MS Office (og jafnvel MS project)
- Góð þekking á notkun AutoDesk teikni- og hönnunarforrita
- Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli er mikill kostur